Ólafur Jóhannesson, þjálfari Hauka í fyrstu deildinni, var svekktur með tap sinna manna gegn Grindvíkingum í kvöld.
,,Maður er aldrei sáttur með tapa, en það var staðreyndin í dag. Ég vil meina að við höfum verið mjög daprir í fyrri hálfleik og nánast ekki með í leiknum en við spiluðum fínan bolta í seinni."
,,Því miður náðum við ekki að koma okkur í almenninleg færi til þess að setja mark á þá og það er eitthvað sem við þurfum að laga. Við þurfum eitthvað að skerpa sóknarlínuna okkar," sagði Ólafur ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið hér að ofan.





















