„Við yfirspiluðum þá gjörsamlega og sköpuðum okkur fullt af færum," sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings R. eftir að liðið tapaði 1-2 fyrir Selfossi í 1. deildinni. Víkingar voru mikið mun betri í fyrri hálfleik en var refsað fyrir að nýta ekki færin.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 2 Selfoss
„Okkur var refsað grimmilega í kvöld. Leikurinn var skemmtilegur en snérist upp í baráttu og slagsmál í seinni hálfleik. Selfyssingar voru skipulagðir og fastir fyrir og við gáfum eftir. Við þurfum að vera tilbúnir að jafna andstæðingana í hörku þegar á þarf að halda."
„Ef við viljum verða alvöru lið verðum við að halda stöðugleika. Þessir drengir verða að skilja það að þeir eru engir kóngar. Þeir eru enn í 1. deild og við verðum að vinna fyrir öllu sem við viljum ná."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.

























