Heimild: BBC
Þá er komið að helsta slúðrinu úr enska boltanum á þessum flotta föstudegi.
Arsenal ætlar að reyna að fá Wayne Rooney frá Manchester United í sumar. (Daily Mail)
Tottenham vonast til að Gareth Bale muni skrifa undir nýjan samning sem færir honum 170 þúsund pund í vikulaun. (Daily Mirror)
Rafael Benítez segir að Jose Mourinho muni fá 100 milljónir punda í leikmannakaup þegar hann tekur við Chelsea á nýjan leik. (The Sun)
Tottenham og Chelsea hafa bæði spurst fyrir um Luke Shaw, 17 ára vinstri bakvörð Southampton. (The TImes)
Tottenham er að ganga frá kaupum á David Villa framherja Barcelona. (Talksport)
WBA hefur óskað eftir að fá Romelu Lukaku aftur á láni á næsta tímabili. (Daily Mail)
Manchester United mun berjast við Bayer Leverkusen um Nicolas Gaitan miðjumann Benfica en hann er metinn á 25 milljónir punda. (Daily Express)
Manchester City vill fá Jesus Navas kantmann Sevilla. (The Times)
Stoke er á eftir Guilherme Siqueira vinstri bakverði Granada. (Talksport)
Arsenal, Tottenham og Fulham hafa áhuga á Matej Vydra sem hefur slegið í gegn í láni hjá Watford frá Udinese. (Daily Express)
Steve Clarke, stjóri WBA, ætlar að bjóða Franco Di Santo framherja Wigan að koma til félagsins. (Daily Mirror)
Aaron Lennon, kantmaður Tottenham, er á óskalista Inter. (Daily Mirror)
Hull vill fá Peter Odemwingie frá WBA. (Daily Telegraph)
Martin Jol verður líklega áfram stjóri Fulham þrátt fyrir orðróm um að Gus Poyet muni taka við liðinu. (London Evening Standard)
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist ekki hafa áhyggjur af framtíð sinni en hann á eitt ár eftir af samningi sínum. (London Evening Standard)
Landon Donovan reyndi að fá Frank Lampad til LA Galaxy. (Goal.com)


