Á meðan lokaumferðir í helstu deildum Evrópu fara fram um helgina þá eru enn þrjár umferðir eftir í spænsku úrvalsdeildinni. 36. umferðin verður á dagskrá um helgina, ásamt því að úrslitaleikur spænska Konungsbikarsins fer fram í kvöld.
Þar mætast nágrannarnir Real Madrid og Atletico Madrid á Santiago Bernabeu en leikurinn hefst klukkan 19:30. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1992 að þessi lið mætast í úrslitum en Real Madrid hefur unnið keppnina 18 sinnum en Atletico Madrid 9 sinnum.
Í spænsku úrvalsdeildinni er hörð barátta á milli Real Sociedad og Valencia um fjórða sæti deildarinnar, en það gefur þátttökurétt í undankeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð. Bæði lið eiga leiki á morgun.
Þá er mjótt á munum í neðri hluta deildarinnar þar sem sex lið eru í fallbaráttu. Barcelona er þegar búið að tryggja sér titilinn en liðið mætir Real Valladolid á sunnudagskvöld.
Spænski Konungsbikarinn - Úrslitaleikur
Í kvöld:
19:30 Real Madrid - Atletico Madrid
Spænska úrvalsdeildin
Laugardagur:
16:00 Getafe - Valencia
18:00 Granada - Osasuna
20:00 Sevilla - Real Sociedad
Sunnudagur:
10:00 Levante - Rayo Vallecano
15:00 Deportivo La Coruna - Espanyol
17:00 Real Zaragoza - Athletic Bilbao
19:00 Barcelona - Real Valladolid (Beint á Stöð 2 Sport)
Mánudagur:
20:00 Mallorca - Real Betis
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |



