Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 17. maí 2013 16:30
Magnús Már Einarsson
Svínshöfuð í skáp og brotin bílrúða á æfingasvæði Stoke
Mynd sem eiginkona Jones birti á Instagram í dag.
Mynd sem eiginkona Jones birti á Instagram í dag.
Mynd: Instagram
Stoke hefur ákveðið að rannsaka innan sinna herbúða hvernig svínshöfuð endaði í skápnum hjá Kenwyne Jones í búningsklefa félagsins

Kissa Abdullah, kærasta Jones, birti mynd af svínshöfiðinu á Instagram í dag og lét í sér heyra en hún segist ekki skilja hvað hafi átt að vera fyndið við þennan gjörning.

Glenn Whelan er sagður hafa borið ábyrgð á því að svínshöfuðið endaði í skápnum hjá Jones.

Jones ku sjálfur ekki hafa hlegið af atvikinu en hann tók sig til og braut rúðuna á bíl Whelan á æfingasvæði Stoke í dag.

Stoke sendi síðan frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem félagið segist ætla að rannsaka málið.
Slapp
banner