Mörg félög hafa áhuga á Rashford - Fara Antony og Zirkzee á láni? - Undirbúa brottför Alonso - Arsenal skoðar að stækka Emirates
   lau 17. maí 2014 16:06
Hafliði Breiðfjörð
Janko: Eftir þennan sigur verður erfitt að sigra okkur
Milan Stefán Jankovic.
Milan Stefán Jankovic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta var jafn leikur, bæði lið gátu unnið en sem betur fer komumst við í 3-1 yfir," sagði Milan Stefán Jankovic þjálfari Grindavíkur í beinni á SportTV eftir 3-2 sigur á ÍA í 1. deild karla í dag.

Grindavík byrjaði deildina á tapi gegn Leikni í fyrstu umferð en vann svo 4-1 sigur á ÍA í bikarnu í vikunni og svo aftur í dag.

,,Eftir að hafa tapað fyrsta leiknum var mjög mikilvægt að vinna Skagamenn tvisvar. Eftir þennan sigur verður mjög erfitt að sigra okkur," sagði Janko.

,,Í fyrra unnum við fyrsta leik en núna töpuðum við honum. Eftir tapið gegn Leikni ætlum við að vinna alla leiki sem eftir eru. Við mætum næst BÍ/Bolungarvík og þar ætlum við að spila okkar bolta og fá þrjú stig heim."
Athugasemdir
banner
banner