Víkingar frá Ólafsvík halda áfram sinni frábæru byrjun í efstu deild með 3-0 sigri á Skagamönnum.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 3 - 0 ÍA
Liðið hefur unnið 3 af fyrstu 4 leikjum sínum í deildinni og trónir sem stendur á toppnum.
"Þetta er óvenjuleg staða og mjög sérstakt en rosalega notalegt. Það er mjög gaman að geta verið á toppnum, sama þótt það sé bara í einn sólahring eða út vikuna"
"Við vitum okkar markmið og við vitum einnig að við þurfum að fá að minnsta kosti 15 stig til viðbótar til þess að halda okkur í deildinni"
Athugasemdir