„Úrslitin segja kannski sína sögu," segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA. Skagamenn töpuðu illa 3-0 fyrir Víkingi Ólafsvík í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 3 - 0 ÍA
„Þessi þétta holning sem við sýndum í síðasta leik (gegn Fjölni) og stærstan hluta leiksins gegn FH náðist ekki í dag."
ÍA hefur krækt í þrjú stig í fyrstu fjórum umferðunum en Gunnlaugur segir að menn séu alls ekki farnir að örvænta.
„Alls ekki. Við eigum heldur betur stórleik í næsta leik gegn Fylki og þurfum bara að undirbúa okkur undir þann leik."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir