Stjarnan, sem unnið hefur fyrstu þrjá leiki sína í Pepsi-deildinni, heimsækir KR í kvöld. Garðabæjarliðið fer á topp deildarinnar með sigri og reyndar einnig með jafntefli.
KR-ingar unnu góðan sigur gegn FH í síðustu umferð og geta heldur betur hoppað upp töfluna takist þeim að landa öðrum sigri í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og verður beint á Stöð 2 Sport.
Tveir aðrir leikir verða í fjórðu umferð Pepsi-deildarinnar í kvöld.
Víkingar úr Reykjavík eru í leit að sínum fyrsta sigri og mæta Val en á sama tíma leika Þróttur og Breiðablik í Laugardalnum. Þróttarar þurfa heldur betur að girða sig í brók eftir 6-0 tap gegn Stjörnunni í síðasta leik en Blikar hafa unnið tvo leiki í röð eftir tap í fyrstu umferð.
Allir leikirnir í deildinni verða að sjálfsögðu í beinum textalýsingum hjá okkur.
þriðjudagur 17. maí
Pepsi-deild karla 2016
19:15 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
19:15 Þróttur R.-Breiðablik (Þróttarvöllur)
20:00 KR-Stjarnan (Alvogenvöllurinn)
4. deild karla 2016 B-riðill
21:00 KFG-ÍH (Samsung völlurinn)
4. deild karla 2016 D-riðill
20:30 KH-Vatnaliljur (Valsvöllur)
1. deild kvenna 2016 A-riðill
20:00 Fram-Víkingur Ó. (Framvöllur - Úlfarsárdal)
1. deild kvenna 2016 B-riðill
20:00 Álftanes-Keflavík (Bessastaðavöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir