Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. maí 2016 10:00
Magnús Már Einarsson
Umboðsmaður Zlatan neitar sögum um Man Utd
Mynd: Getty Images
Mino Raiola, umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic, hefur blásið á sögusagnir þess efnis að Manchester United hafi boðið leikmanninum samning.

Zlatan er á förum frá PSG og í gær bárust fréttir þess efnis að Manchester United hefði boðið honum samning.

„Í þessum heimi verðum við að sætta okkur við að sumir blaðamenn nota ímyndunaraflið og bua til hluti. Þessi frétt er ekki rétt," sagði Raiola.

Hinn 34 ára gamli Zlatan hefur verið orðaður við félög á Englandi undanfarna mánuði en spennandi verður að sjá hvert Svíinn fer eftir EM í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner