„Þetta kveikti á öllum tilfinningum," sagði Garðar Gunnlaugsson, leikmaður ÍA, skælbrosandi eftir ótrúlegan 4-3 sigur á Fram í Borgunarbikarnum í kvöld.
ÍA var í vondum málum, 3-1 undir þegar lítið var eftir, en á ögurstundu breyttist allt. ÍA skoraði þrjú mörk á fimm mínútum og vann ótrúlegan sigur.
ÍA var í vondum málum, 3-1 undir þegar lítið var eftir, en á ögurstundu breyttist allt. ÍA skoraði þrjú mörk á fimm mínútum og vann ótrúlegan sigur.
Lestu um leikinn: ÍA 4 - 3 Fram
„Þetta var hrikalega sætt, mikilvægt líka fyrir okkur á þessum tímapunkti að ná inn sigri."
Garðar skoraði þrennu í leiknum, en tvö af mörkunum komu af vítapunktinum. Vindurinn spilaði inn í.
„Það voru smá örðugleikar í seinna vítinu, ég held að boltinn hafi fokið fjórum sinnum, en svona er þetta," sagði hann að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir