Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 15:32
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Rosenborg 
Alexander Söderlund í Rosenborg (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Alexander Söderlund, fyrrum framherji FH, hefur gengið til liðs við Rosenborg.

Söderlund skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Rosenborg í dag.

Í síðustu viku virtist Söderlund vera á leið til norsku meistaranna í Molde en á endanum náði Rosenborg að krækja í kappann.

Söderlund lék með FH sumarið 2010 en hann hefur síðan þá skorað 30 mörk í 76 leikjum með Haugesund og í kjölfarið náð að vinna sér sæti í norska landsliðinu.
Slapp
banner
banner