Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 20:47
Ívan Guðjón Baldursson
Álfukeppnin: Auðveldur sigur Nígeríu
Tahítí 1 - 6 Nígería
0-1 Elderson ('5)
0-2 Nnamdi Oduamadi ('10)
0-3 Nnamdi Oduamadi ('26)
1-3 Jonathan Tehau ('54)
1-4 Jonathan Tehau ('69, sjálfsmark)
1-5 Nnamdi Oduamadi ('76)
1-6 Elderson ('80)

Nígería lagði áhugamannalið Tahítí af velli í fyrsta leik liðanna í Álfukeppninni í Brasilíu.

Langflestir höfðu spáð Nígeríu stórsigri fyrir leikinn og allir veðbankar töldu það líklegra en ekki að Nígería myndi skora minnst fjögur mörk í leiknum.

Elderson og Nnamdi Oduamadi komu Nígeríu í þriggja marka forystu en Jonathan Tehau minnkaði muninn fyrir Tahíti með skalla eftir hornspyrnu snemma í síðari hálfleik.

Tehau skoraði einnig næsta mark leiksins en í eigið net og bættu Oudamadi og Elderson fimmta og sjötta marki Nígeríu við og lokatölur öruggur 6-1 sigur.

Til gamans má geta að Tehau er fyrsti leikmaður sögu Álfukeppninnar sem skorar fyrir bæði lið í sama leik.
Slapp
banner
banner
banner