Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 17. júní 2013 09:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Goal 
Buttner íhugaði að fara frá Manchester United
Alexander Buttner, vinstri bakvörður Manchester United, segist hafa íhugað að fara frá félaginu á síðasta tímabili.

Buttner kom til United frá Vitesse Arnhem síðastliðið sumar en hann fann sig þó ekki strax í herbúðum enska félagsins.

,,Ég veit núna hvernig heimþrá er. Ég hugsaði oft um fjölskyldu og vini heima. Ég hugsaði hvað þau væru að gera og annað eins," sagði Buttner.

,,Ég gafst samt ekki upp og Laura kærasta mín og Denny bróðir minn eiga þakkir skilið fyrir það."

,,Þau voru alltaf til staðar fyrir mig á Englandi. Ég gat treyst á hlýju þeirra hvenær sem er. Ég er baráttumaður en ef ég hefði verið einn þá hefði ég verið löngu búinn að taka flug aftur heim til Hollands."

Slapp
banner
banner