Udinese hefur hafnað 8 milljón punda tilboði frá ónefndu ensku úrvalsdeildarliði í framherjann Matej Vydra.
Þessi efnilegi leikmaður, sem er 21 árs gamall, lék sem lánsmaður með Watford í vetur og skoraði þar 22 mörk í Championship-deildinni.
Samkvæmt heimildum Sky Sports bauð enskt félag 8 milljónir punda í Vydra fyrir skömmu en því var hafnað samstundis. Þá hafa tvö þýsk lið einnig áhuga á að fá Vydra í sínar raðir.
Vydra er tékkneskur framherji og hefur hann verið til mála hjá Udinese frá árinu 2010.




