Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 17. júní 2013 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Soccerway 
Hinn efnilegi Clemens til Schalke (Staðfest)
Schalke 04 tókst að næla sér í þýska sóknarmanninn Christian Clemens frá Köln, en kaupverð leikmannsins er óuppgefið.

Clemens er 21 árs gamall og leikmaður þýska U21 árs landsliðsins sem féll úr leik á Evrópumóti U21 árs landsliða á dögunum eftir töp gegn Hollandi og Spáni.

,,Ég hef átt 12 frábær ár hjá Köln en nú er ég ánægður með að klæðast treyju Schalke," sagði Clemens við vefsíðu Schalke.

,,Schalke er eitt af bestu liðum Þýskalands og er í undankeppni Meistaradeildarinnar. Svona tækifæri verður að grípa þegar það gefst."

Clemens á 96 leiki að baki fyrir Köln síðan 2010 og á 37 landsleiki að baki fyrir unglingalandslið Þýskalands.
Slapp
banner
banner