Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 17. júní 2013 15:03
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Í fangelsi fyrir að myrða aðstoðardómara
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Sjö aðilar voru í dag dæmdir í fangelsi í Hollandi fyrir að hafa orðið valdur að dauða Richard Nieuwenhuizen, aðstoðardómara í unglingaleik í Hollandi í desember í fyrra.

Aðilarnir sem fara í fangelsi eru sex leikmenn unglingaliðs Nieuw Sloten sem og fimmtugur faðir eins þeirra.

Sonur Nieuwenhuizen spilaði leikinn gegn Nieuw Sloten með liði Buitenboys en lokatölur urðu 2-2. Eftir leikinn réðust leikmenn Nieuw Sloten á Nieuwenhuizen með þeim afleðingum að hann lést síðar sama dag.

Fimm af leikmönnunum voru dæmdir til að vera í tvö ár í unglingafangelsi og einn af þeim var dæmdur í eins árs dvöl þar.

Faðirinn fékk síðan þyngstu refsinguna en hann var dæmdur í sex ára fangelsi.
Slapp
banner
banner