Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 20:22
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Football-Italia 
Juventus kaupir Peluso (Staðfest)
Það er staðfest að Federico Peluso, 29 ára gamall varnarmaður, er genginn til liðs við Juventus fyrir 4.8 milljónir evra.

Peluso var hjá Juventus hálft síðasta tímabil og lék 30 leiki í þremur mismunandi keppnum.

Peluso kemur til Juve frá Atalanta og getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður.

,,Juventus getur staðfest að það hefur nýtt sér kaupréttinn á Federico Peluso svo hann er kominn til félagsins frá Atalanta," stendur í yfirlýsingu á vefsíðu Juventus.

,,4.8 milljónir verða greiddar fyrir leikmanninn yfir tvö ár. Samningur leikmannsins rennur út 30. júní 2017."
Slapp
banner