Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 17:00
Magnús Már Einarsson
Líkar stórborgarlífið betur en rólegheitin í Keflavík
Óvíst hvort Preece klári tímabilið með Keflvíkingum
David Preece.
David Preece.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óvíst er hvort David Preece, markvörður Keflavíkur, muni klára tímabilið með liðinu.

Þessi 36 ára gamli reynslubolti frá Englandi samdi við Keflvíkinga rétt fyrir mót þar sem Ómar Jóhannsson markvörður liðsins var að glíma við meiðsli. Preece hefur staðið vaktina í markinu í sumar en óvíst er hvort hann klári tímabilið með liðinu.

,,Planið var að koma hingað í tvo mánuði þar til Ómar J yrði klár aftur en ef það er eitthvað sem ég hef lært í fótbolta þá er það að búast við breytingum svo ég ætla að sjá hvernig hlutirnir þróast," sagði Preece við Fótbolta.net.

,,Í hreinskilni sagt þá hef ég átt erfitt með að aðlagast því að búa á svona rólegum stað því að ég er svolítill stórborgari. Ég vil sitja á kaffihúsum þar sem að mikið er af fólki, drekka kaffi, lesa og skrifa svo ég hef reynt að komast sem mest til Reykjavíkur."

,,Það hefur verið sérstaklega erfitt fyrir mig að vera bíllaus. Það er eins og fæturnir hafi verið teknir af mér. Ég leigði bíl í nokkra daga til að fara á túristastaði eins og Gullfoss og Geysi en ég kom hingað til að spila fótbolta og ég hef notið hverrar mínútu á vellinum."

,,Hversu marga leiki til viðbótar ég spila veltur síðan á félaginu og tilboðum sem ég fæ frá Breltandi."

Slapp
banner
banner