Umboðsmaður Slóvakans Marek Hamsik fullyrðir að skjólstæðingur sinn hafi hafnað mörgum tilboðum til að vera áfram hjá Napoli.
Hamsik þykir einn allra besti miðjumaðurinn í ítalska fótboltanum og hefur verið orðaður við mörg af stærstu liðum Evrópu undanfarin ár.
Þó að samherji hans Edinson Cavani sé líklega á förum frá Napoli, þá segir umboðsmaur Hamsik að hann hafi aldrei hugsað um að gera slíkt hið sama.
,,Ef hann vildi yfirgefa Napolo væri hann þegar búinn að gera það," sagði Jurai Venglos, umboðsmaður Hamsik.
,,Það hafa verið tilboð frá nokkrum frábærum félögum. Marek vill hinsvegar ekki fara frá Napoli. Hann vill vera hér alla sína ævi og verða það sama og Totti er fyrir Roma."


