Systursíða okkar í Danmörku, bold.dk, segir að Arnór Smárason muni hafa úr mörgum tilboðum að velja þegar samningur hans við Esbjerg rennur út í lok mánaðarins.
Hann og félagið hafa lýst því yfir að ábugi sé fyrir áframhaldandi samstarfi og verður það rætt þegar Arnór mætir aftur eftir sumarfrí.
Hann og félagið hafa lýst því yfir að ábugi sé fyrir áframhaldandi samstarfi og verður það rætt þegar Arnór mætir aftur eftir sumarfrí.
Arnór segist við bold.dk mjög ánægður með þann áhuga sem honum hafi verið sýndur en vill ekkert gefa upp hvaða félög er um að ræða.
Talað er um að OB Odense sé þar á meðal.



