Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 17. júní 2013 08:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Paulinho segist ekki vera í viðræðum við ensk lið
Paulinho, miðjumaður Corinthians í Brasilíu, hefur blásið á þá orðróma að umboðsmaður hans sé á Englandi í viðræðum um félagaskipti hans í sumar.

Brasilíski landsliðsmaðurinn hefur verið orðaður við brottför frá heimalandinu og er talið að Tottenham leiði kapphlaupið um leikmanninn.

Umboðsmaður er staddur á Englandi og sagður vera í viðræðum við lið í ensku úrvalsdeildinni, en Paulinho segir að það tengist honum ekkert.

Paulinho segist þó vera ánægður í heimalandinu og hefur ekki í hyggju að róa á önnur mið á næstunni.

,,Hann er ekki í neinum viðræðum. Umboðsmaður minn hefur marga skjólstæðinga, ég er ekki sá eini," sagði Paulinho.

,,Hann er á Englandi en hann vinnur fyrir marga leikmenn. Þeir segja að hann sé að vinna fyrir mig til að yfirgefa Corinthians, en það er ekki tilfellið."
Slapp
banner
banner