Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 17. júní 2013 10:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Goal 
Prandelli: Balotelli þarf að hætta að sýna vöðvana
Cesare Prandelli, þjálfari Ítalíu, segir að Mario Balotelli verði að hætta að fagna mörkum með því að klæða sig úr treyjunni.

Balotelli skoraði sigurmarkið gegn Mexíkó í Álfukeppninni í gærkvöldi og fagnaði með því að rífa sig úr að ofan.

,,Allir hafa séð vöðvana hans svo hann þarf ekki að fara úr treyjunni næst," sagði Prandelli um fagn Balotelli.

Leikmaðurinn reif sig einnig úr að ofan þegar hann skoraði í undanúrslitaleik gegn Þjóðverjum á HM í fyrra.

,,Við höfum rætt um þetta við Mario því að þessi gulu spjöld safnast saman. Ég tók samt eftir því að hann var einbeittur og ákveðinn allan leikinn."
Slapp
banner
banner