Hæ Hó Jibbí Jei það er kominn 17. júní. Þrátt fyrir daginn er Twitter dagsins með hefðbundnu sniði og litast að sjálfsögðu af leikjum Pepsi-deildarinnar í gær.
Kjartan Atli Kjartansson, Stjörnumaður:
Sami markvörður og svipuð vörn hjá Stjörnunni en samt mun betri varnarleikur. Er þetta Logi Ólafsson að sýna Bjarna Jó hvernig á að verjast?
Einar Hjörleifsson, markvörður Víkings Ó.:
Markið er skráð á björn daníel, frábært fyrir mig. #FleiriStig #Fantasy #fotbolti
Sigurbjörn Hreiðarsson, spilandi aðstoðarþjálfari Hauka:
Ekki gleyma því í gleði dagssins að Maltin er 100 ára í dag. Enduðum alltaf æfingar á maltleik hér áður. Köld Malt eftir góðan sigur æði!
Atli Viðar Björnsson, sóknarmaður FH:
Góð ferð í Ólafsvík í dag. Góður sigur og líka frábær umgjörð og móttökur hjá heimamönnum. Til mikillar fyrirmyndar.
Hólmbert Aron Friðjónsson, markaskorari Fram:
Ég & viðtöl erum ekki góðir vinir.. #shitt
Rúnar Már Sigurjónsson, leikmaður Vals.
Stórkostlegt að sjá @knottur og @freyrale saman í settinu. KG með Pirlo skeggið kemur skemmtilega út.
Tómas Þór Þórðarson, Morgunblaðinu:
Markið hjá Suárez er jafn flott og stullurnar hjá v. bakverðinum eru ógeðslegar. #confed #fotbolti
Sigurður Mikael Jónsson, stuðningsmaður ÍA:
Taki Skaginn það jákvæða úr þessum leik inn í prógrammið framundan þá koma stig. KRingar refsa bara fyrir ÖLL mistök. #fotbolti
Heiðar Ingi Helgason, stuðningsmaður Þórs:
Hvað segja menn um Orra Hjaltalín í miðvörð? Reyndur maður sem kann að láta í sér heyra og stjórna mönnum.. #DFK #Þór #fotbolti
Jóhann Guðmundsson, einn af forsprökkum Mjölnismanna:
Það verður að fara að taka Hlyn úr byrjunarliðinu. Atli-Janez hafa spilað saman í 2 ár og ná saman. Voru vs Vík.Ól - cleansheet #fotbolti
Magnús Guðmundsson, fótboltaáhugamaður:
Zoran á landinu og ég sem gamall Skagamaður vil sjá hann taka við ÍA #rekumÞórð #fotbolti #kolbeinnkafteinn #buildingGame
Geir Jónsson, Skagamaður:
Saaaelll hvað maður myndi sætta sig við 8. sætið núna! #aframia #fotbolti #spekingarforareason

