Sergio Aguero, leikmaður Manchester City og argentínska landsliðsins, hefur komið fyrirliða sínum hjá argentínska landsliðinu til varnar eftir að hann misnotaði víti gegn Íslandi.
„Leo sýndi okkur að hann er mannlegur. Við styðjum hann," sagði Aguero sem skoraði mark Argentínu í leiknum.
„Hann átti bara slæman dag en við vitum að hann getur unnið leiki fyrir okkur á hvaða augnabliki sem er í leiknum. Ég vona að hann geti gert betur í næsta leik, gegn Króatíu.
„Fyrsti leikurinn er alltaf erfiðastur. Allir vildu spila við okkur. Ísland varðist og þeirra einu möguleikar til að skora voru í föstum leikatriðum eða úr frákasti. Ég held þeir hafi fagnað jafnteflinu eins og sigri," sagði Aguero að lokum.
Næsti leikur Argentínu er gegn Króatíu þann 21. júní, fimmtudaginn næsta.
Athugasemdir