Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 17. júní 2018 10:12
Magnús Már Einarsson
Baldur mætti fullklæddur eins og Hannes í stúkuna
Icelandair
Baldur í góðum gír í stúkunni í gær.
Baldur í góðum gír í stúkunni í gær.
Mynd: Úr einkasafni
Baldur Kristjánsson, ljósmyndari, mætti fullklæddur sem markvörður í stúkuna á leik Íslands og Argentínu í gær

Baldur er vinur Hannesar Þórs Halldórssonar, markvarðar Íslands, og hann var klæddur í rauðan markmannsbúning og með markmannshanska í stúkunni í gær.

Undanfarna mánuði hefur Baldur meðal annars verið með Hannesi við tökur á glæsilegri auglýsingu Coca-Cola.

Baldur hefur áður mætt sem fullklæddur markvörður á leik með Hannesi hjá Randers í Danmörku.

Hannes fór gjörsamlega á kostum í leiknum í gær en hann varð vítaspyrnu frá Lionel Messi og var maður leiksins.

Eftir leik kíkti Hannes upp í stúku og heilsaði upp á Baldur vin sinn eins og sjá má hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner