Nú hafa byrjunarlið Brasilíu og Sviss verið opinberuð og eru mörg þekkt nöfn. Leikurinn hefst klukkan 18:00.
Brasilíumenn eru taldir sigurstranglegir á mótinu og vilja bæta upp fyrir síðasta heimsmeistaramót sem fram fór í heimalandinu árið 2014.
Svisslendingar geta leyft sér að dreyma um að vinna mótið en mun minni líkur eru á því að þeir geti það.
Byrjunarlið Brasilíu er ógnarsterkt. Þar eru menn á borð við Neymar, Gabriel Jesus, Willian, Coutinho og Casemiro. Alisson, markvörður Roma, byrjar í markinu. Marcelo er fyrirliði.
Í liði Sviss er hægt að finna Xhaka og Lichtsteiner, leikmenn Arsenal, sem og Xherdan Shaqiri.
Byrjunarlið Brasilíu:Alisson Ramses Becker; Danilo, Thiago Silva, Miranda, Marcelo (f); Paulinho, Casemiro, Philippe Coutinho; Willian, Gabriel Jesus, Neymar
Byrjunarlið Sviss: Yann Sommer; Stephan Lichtsteiner (f), Fabian Schär, Manuel Akanji, Ricardo Rodríguez; Valon Behrami, Granit Xhaka; Xherdan Shaqiri, Blerim Dzemaili, Steven Zuber; Haris Seferovic
Athugasemdir