Landslið Kosta Ríka og Serbíu mætast í fyrsta leik dagsins á HM í D-riðli en leikurinn hefst klukkan 12:00 á íslenskum tíma.
Byrjunarliðin hafa verið opinberuð og eru þau hér að neðan.
Byrjunarlið Serbíu er öflugt með leikmenn eins og Ivanovic, Kolarov og Tadic. Þá verður sérstaklega spennandi að fylgjast með Milinkovic-Savic.
Kosta Ríka býr yfir nokkrum öflugum leikmönnum en þar má helst nefna Keylor Navas, markmann Real Madrid sem og Bryan Ruiz leikmann Sporting CP í Portúgal. Það er spurning hvort að liðið geti leikið eftir árangur á síðasta HM þar sem liðið komst alla leið í undanúrslit.
Serbía
Stojkovic; Tosic, Ivanovic, Kolarov, Milenkovic, Milivojevic, Milinkovic-Savic, Matic, Mitrovic, Tadic, Ljajic
Kosta Ríka
Navas, Acosta, Gonzalez, Duarte, Borges, Calvo, Gamboa, Guzman, Ruiz, Venegas, Urena
Athugasemdir