Ríkjandi heimsmeistarar Þýskalands mæta Mexíkó í fyrsta leik í F-riðli á HM sem hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma.
Búið er að opinbera byrjunarliðin og má finna þau hér að neðan. Þýska liðið er ógnarsterkt. Neuer byrjar í markinu en hann var í kapphlaupi við tímann um að verða klár í mótið. Hummels og Boateng er á sínum stað í vörn liðsins ásamt Joshua Kimmich og Marvin Plattenhardt, leikmanni Herta Berlin.
Miðjan er uppsett svipað og við var búist en ekki er pláss fyrir Ilkay Gundogan sem fær sér sæti á bekknum. Þá leiðir Timo Werner framlínu liðsins.
Hjá Mexíkó má helst nefna að Guillermo Ochoa á sínum stað í marki liðsins, Javier Hernandez byrjar frammi og Carlos Vela er á sínum stað á miðjunni.
Þýskaland
Neuer (F); Plattenhardt, Kimmich, Hummels, Boateng, Khedira, Draxler, Kroos, Ozil, Werner, Muller
Mexíkó
Ochoa; Ayala, Salcedo, Layun, Moreno, Gallardo, Herrera (F), Guardado, Vela, Hernandez, Lozano.
Athugasemdir