Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   sun 17. júní 2018 07:30
Gunnar Logi Gylfason
Delph á von á sínu þriðja barni - Gæti misst af leik
Mynd: Getty Images
Fabian Delph, landsliðsmaður Englands, gæti misst af einum leik Englands á HM en Natalie, eiginkona hans, á von á sér 30. júní en það er tveimur dögum eftir leik Englands og Belgíu.

Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, hefur gefið leikmanninum leyfi til þess að fara heim fái konan hans hríðir svo hann geti verið með henni.

„Gareth [Southgate] skilur hversu mikilvæg fjölskyldan er mér og fjölskyldan er honum líka mikilvæg," segir Delph.

Phil Jones, liðsfélagi Delph í landsliðinu, yfirgaf æfingabúðir landsliðsins þegar liðið undirbjó sig fyrir æfingaleik við Nígeríu vegna fæðingu dóttur sinnar.

„Við höfum talað mikið um þetta. Hann var í burtu frá æfingabúðunum og þurfti að fljúga til baka til að vera viðstaddur fæðingu barnsins síns og kom rétt fyrir fæðinguna. Ég vona að ég geti gert það líka."

England leikur sinn fyrsta leik á heimsmeistaramótinu gegn Túnis á mánudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner