„Ísland gerði nánast ekkert," sagði Lionel Messi í viðtali eftir 1-1 jafntefli Íslands og Argentínu í gær.
Messi átti ellefu marktilraunir í gær en án árangurs. Hann vill meina að Ísland hafi lítið gert í leiknum.
Messi átti ellefu marktilraunir í gær en án árangurs. Hann vill meina að Ísland hafi lítið gert í leiknum.
„Það eina sem þeir gerðu var að verjast og sækja með engu öðru en löngum innköstum."
„Ég tel að við höfum verðskuldað að vinna en það eru jákvæðir punktar sem við getum tekið út úr þessu þrátt fyrir úrslitin."
„Við erum bitrir og reiðir. Ég ber ábyrgð á því að við tókum ekki öll þrju stigin. Ég hefði getað náð þeim með marki úr vítaspyrnunni."
Athugasemdir