Aron Elís Þrándarson, Hólmbert Friðjónsson og Adam Örn Arnarson byrjuðu allir inn á í 1-2 sigri Álasund gegn Sandnes.
Þetta var útileikur hjá Álasund sem lenti 1-0 undir í upphafi seinni hálfleiks.
Íslendingaliðið svaraði með tveimur mörkum en það seinna skoraði Sonni Nattestad, Færeyingurinn sem var áður á mála hjá FH.
Álasund er efst í næst efstu deild Noregs og er í góðum málum í báráttunni um sæti í efstu deild á næsta tímabili.
Well done @AdamOrn2, @aronthrandar, @danielgretarss & @holmbert 🇮🇸🙌 #TeamTotalFootball https://t.co/Xn4tGzaLdB
— Total Football (@totalfl) June 17, 2018
Athugasemdir