Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, hefur starfað í kringum landsliðið í ansi langan tíma en hefur aldrei séð eins marga fjölmiðlamenn samankomna eins og á leik Íslands og Argentínu í gær.
Alls voru yfir 1000 fjölmiðlamenn að störfum í tengslum við leikinn. Þar verða 600 blaðamenn, 250 ljósmyndarar sem og 250 sjónvarps/útvarpslýsendur.
Alls voru yfir 1000 fjölmiðlamenn að störfum í tengslum við leikinn. Þar verða 600 blaðamenn, 250 ljósmyndarar sem og 250 sjónvarps/útvarpslýsendur.
Ómar segir að þetta sé sá leikur sem vaki næst mesta athygli í riðlakeppninni, á eftir opnunarleiknum.
Eftir úrslitin gegn Argentínu má búast við því að enn fleiri fjölmiðlar leggi áherslu á að fjalla um íslenska liðið en ekki er talið að fjölgunin í Gelendzhik, þar sem strákarnir okkar hafa bækistöðvar og æfingasvæði, verði mikil vegna stærðar Rússlands en bærinn er fjarri öllum HM-leikvöngum.
Sjáðu viðtalið við Ómar í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir