Íslenski landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason virðist hafa vakið mikla athygli eftir að hann kom inn á í 1-1 jafntefli Íslands og Argentínu í gær.
Rúrik hefur bætt við sig yfir 200 þúsund fylgjendum á Instagram á innan við sólarhring!
Rúrik hefur bætt við sig yfir 200 þúsund fylgjendum á Instagram á innan við sólarhring!
Rúrik er þegar þetta er skrifað kominn með 255 þúsund fylgjendur þar.
Kvenfólk er í yfirgnæfandi meirihluta í nýjustu fylgjendum Rúriks en hann virðist hafa hrifið konur um allan heim.
Eins og sjá má á grafinu hér að neðan hefur einnig verið mikið leitað að Rúrik á Google í dag og í gær.
Smelltu hér til að skoða Instagram síðu Rúriks
Rúriksvaktin: Heimsbyggðin virðist hafa haft mun meiri áhuga á að googla varamanninn ágæta en guttann sem varði vítaspyrnu frá Messi. Hneyksl! 🧐 #fotboltinet pic.twitter.com/sYRlOGfUi0
— Agnar Freyr Helgason (@aggiflinki) June 17, 2018
Athugasemdir