Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, hefur tilkynnt enska hópnum byrjunarliðið fyrir fyrsta leik Englands á heimsmeistaramótinu, gegn Túnis.
Þetta gerir hann til að losa um spennu sem gæti myndast í hópnum.
„Leikmennirnir vita nú þegar byrjunarliðið fyrir fyrsta leikinn," sagði Soutghate.
„Við höfum verið að æfa kerfi sem við höldum að henti leikmönnunum sem við höfum og hvernig leik við viljum spila," sagði landsliðsþjálfarinn enski.
Leikur Englands gegn Túnis fer fram á mánudaginn klukkan 18:00.
Athugasemdir