Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 17. júní 2018 21:30
Gunnar Logi Gylfason
Southgate: Leikmennirnir eru tibúnir
Gareth Southgate
Gareth Southgate
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, segir sína menn vera tilbúna fyrir fyrsta leik liðsins á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Rússlandi um þessar mundir.

England hefur leik á morgun, 18. júní, klukkan 18:00 þegar liðið leikur gegn Túnis í síðasta leik dagsins.

Englendingar hafa verið heppnir með meiðsli en allir leikmenn liðsins eru klárir núna eftir að Marcus Rashford hefur jafnað sig á smávægilegum hnémeiðslum.

„Þeir eru tilbúnir," sagði Southgate við YouTube rás enska landsliðsins.

„Ef þeir spiluðu í dag væru þeir tilbúnir. Við verðum að sjá til þess að þeir ofreyni sig ekki líkamlega og við drekkjum þeim ekki í upplýsingum. Þeir vita hvernig við viljum spila og þeir vita hvernig andstæðingurinn spilar," sagði Southgate að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner