Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 17. júní 2018 15:15
Ingólfur Páll Ingólfsson
Stuðningsmenn Everton: Ættu að byggja liðið í kringum Gylfa
Icelandair
Gylfi var geggjaður í gær.
Gylfi var geggjaður í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stuðningsmenn Everton fóru mikinn á Twitter eftir leik og hrósuðu Gylfa fyrir frammistöðu sína í leiknum gegn Argentínu.

Gylfi Þór er nýstiginn upp úr meiðslum og átti frábæran leik í gær þar sem fyrirgjöf hans leiddi meiðal annars til þess að Alfreð Finnbogason skoraði fyrsta mark Íslands á HM.

Aðdáendur Everton voru yfir sig hrifnir yfir endurkomu og frammistöðu Gylfa. Að þeirra mati var frammistaðan sönnun þess að Everton ætti að byggja lið sitt upp í kringum leikmanninn á næsta tímabili og að það ætti ekki að spila Gylfa í vængstöðunni eins og var ítrekað gert á síðasta tímabili á Goodison Park.










































Athugasemdir
banner
banner
banner