Árni Vilhjálmsson byrjaði inn á og lék fyrsta klukkutímann í tapi sinna manna í Jönköpings Södra gegn Falkenbergs FF í næst efstu deild í Svíþjóð í dag.
Árni spilaði á hægri kantinum og fór hann útaf í stöðunni 0-1 fyrir gestina í Falkenbergs.
Samherjar Árna jöfnuðu stuttu seinna áður en gestirnir bættu við tveimur mörkum og 1-3 sigur toppliðs Falkenbergs FF staðreynd.
Jönköpings Södra er í 10. sæti í 16 liða deild eftir að hafa fallið úr deild þeirra bestu á síðasta tímabili.
Athugasemdir