Chelsea hefur staðfest að félagið hafi gert Englandsmeisturum Manchester United tilboð í framherjann Wayne Rooney.
Félagið hafnar því hinsvegar að hafa boðið annaðhvort Juan Mata eða David Luiz með, líkt og enskir fjölmiðlar hafa haldið fram.
Félagið hafnar því hinsvegar að hafa boðið annaðhvort Juan Mata eða David Luiz með, líkt og enskir fjölmiðlar hafa haldið fram.
,,Chelsea FC getur staðfest að í gær gerði félagið Manchester United skriflegt tilboð í Wayne Rooney," segir í yfirlýsingu frá Chelsea.
,,Skilmálar þess eru leyndarmál, en til að forðast allan vafa um það sem hefur verið greint frá í fjölmiðlum þá innihélt tilboðið engan leikmann eða lánssamning á leikmanni Chelsea til Manchester United."
Rooney er sagður afar óánægður með stöðu sína hjá United, en hann vill ekki lifa í skugganum af Robin van Persie í fremstu viglínu.
Athugasemdir