Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 17. júlí 2014 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Atletico Madrid og Monaco á eftir Antoine Griezmann
Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid og Monaco hafa blandað sér í baráttuna um vængmanninn Antoine Griezmann, leikmann Real Sociedad.

Griezmann er franskur landsliðsmaður og hefur hann staðið sig frábærleg aí liði Sociedad undanfarin tvö ár.

Vann hann sér sæti í franska landsliðinu sem fór á HM og þar sem hann kom við sögu í öllum fimm leikjum Frakka.

Þessi 22 ára gamli vængmaður hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal í sumar, en talið er að Sociedad muni ekki selja Griezmann fyrir minna en 30 milljónir evra, eða því sem nemur riftunarákvæði í samningi hans.
Athugasemdir
banner
banner