Keppnin um Gullskó adidas er hálfnuð í Pepsi deild kvenna og er Harpa Þorsteinsdóttir Stjörnunni markahæst með 16 mörk í 9 leikjum.
Þrír leikmenn eru í öðru sætinu með 7 mörk en það eru þær: Guðmunda Brynja Óladóttir Selfossi, Shaneka Jodian Gordon ÍBV og Dagný Brynjarsdóttir Selfossi.
Tveir leikmenn hafa skorað 6 mörk en markahæstu leikmenn Pepsi deild kvenna má sjá með því að smella hér.
Athugasemdir