Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 17. júlí 2014 07:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Daily Mail 
Khedira er ekki í viðræðum við Arsenal
Sami Khedira.
Sami Khedira.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur ekki náð samkomulagi við Real Madrid um kaupverð á þýska miðjumanninum Sami Khedira, líkt og spænskir fjölmiðlar höfðu fullyrt.

Talið var að Arsenal hefði boðið Real í kringum 20 milljónir evra fyrir þennan nýkrýnda heimsmeistara, en hann hefur einnig verið undir smásjá Chelsea.

,,Við erum ekki í neinum viðræðum við Arsenal. Ég tel ekki að kaupverð hafi verið samþykkt, annars hefði ég verið búinn að frétta af því," sagði Jorg Neubauer, umboðsmaður Khedira.

,,Við erum að ræða við Real um samning hans, en ekkert er nálægt því að vera frágengið þessa stundina. Sami er nýkominn heim af HM og er farinn í frí."
Athugasemdir
banner
banner