Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. júlí 2014 09:45
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Liverpool og Tottenham berjast um Davies
Powerade
Ben Davies.
Ben Davies.
Mynd: Getty Images
Sami Khedira.
Sami Khedira.
Mynd: Getty Images
Slúðurpakki dagsins er að sjálfsögðu á sínum stað í dag.



Ron Vlaar er á óskalista QPR en hann gæti komið til félagsins frá Aston Villa á fjórar milljónir punda. (Birmingham Mail)

Liverpool ætlar að berjast við Tottenham um Ben Davies vinstri bakvörð Swansea. (Daily Star)

Chelsea er tilbúið að selja John Obi Mikel en félagið vill fá Sami Khedira frá Real Madrid í hans stað. Khedira hefur verið sterklega orðaður við Arsenal að undanförnu. (Daily Express)

Arsneal mun kaupa hægri bakvörðinn Mathieu Debuchy frá Newcastle á tíu milljónir punda í dag. (London Evening Standard)

Stoke er eitt af þeim félögum sem hefur áhuga á spænska kantmanninum Keko en hann er á förum frá Catania. (Insidefutbol)

Olympiakos vill fá Bryan Ruiz frítt frá Fulham þó hann eigi ár eftir af samningi sínum. (Daily Mail)

Stoke er nálægt því að ganga frá kaupum á Oussama Assaidi kantmanni Liverpool á sjö milljónir punda. Assaidi var í láni hjá Stoke á síðasta tímabili. (Daily Telegraph)

Swansea er að krækja í Monarcas Morelia og Jefferson Montero á fjórar milljónir punda. (Daily Mirror)

Tottenham ætlar að bjóða belgíska varnarmanninum Jan Vertonghen nýjan fimm ára samning með launahækkun. (Daily Mail)

Liverpool mun ekki láta brotthvarf Luis Suarez eyðileggja titilmöguleika á komandi tímabili en þetta segir Brendan Rodgers stjóri liðsins. (Daily Mirror)
Athugasemdir
banner
banner