Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 17. júlí 2014 10:00
Mate Dalmay
Þrír markahæstir þegar mótið er hálfnað
Adidas
Hörður Sveinsson er einn þriggja leikmanna sem hefur skorað 6 mörk í sumar
Hörður Sveinsson er einn þriggja leikmanna sem hefur skorað 6 mörk í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Pepsi deildin er hálfnuð nú þegar 11 umferðir hafa verið spilaðar, því er keppnin um Gullskó Adidas einnig hálfnuð.

Þrír leikmenn deila efsta sætinu og hafa skorað 6 mörk. Það eru þeir Jeppe Hansen, Stjörnunni en hann er farinn til Danmerkur, hinir tveir eru Hörður Sveinsson, Keflavík og Jonathan Ricardo Glenn, ÍBV.

Sjö leikmenn hafa skorað 5 mörk í fyrstu 11 leikjum sumarsins en markahæstu leikmenn Pepsi deildar karla má sjá með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner