Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur Fótbolta.net um Pepsi-deildina, sagði í viðtali á X-inu um liðna helgi að gæðin í deildinni væri ekki búin að vera nægilega mikil í sumar.
„Deildin er búin að vera slök í sumar. Því miður. Fyrir okkur áhugamennina þá er þetta ekki búið að vera upp á marga fiska. Það hafa mörg lið komið neikvætt á óvart eins og Breiðablik, ÍBV og Valur. Þetta er búið að vera upp og niður," sagði Tryggvi.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, er ekki sammála Tryggva og lét það skýrt í ljós í viðtali sem birt er á 433.is.
„Það er fullt af góðum liðum í deildinni. Tryggvi var svo neikvæður að ég var alveg að sofna þegar ég hlustaði á þetta. Ég skil ekki hvað hann var að tala um að deildin væri léleg. Ég er ekki sammála honum og mér finnst deildin hafa verið góð í sumar. Það er fullt af ungum og efnilegum leikmönnum að koma upp," sagðu Heimir.
Taktu þátt í könnun um málið:
Athugasemdir