Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 17. júlí 2017 21:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óli Stefán: Gunni Nelson var sleginn í rot og stóð upp
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við hittum á Fjölni í stuði í dag," sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur eftir 4-0 tap í Pepsi-deild karla í kvöld.

„Að sama skapi voru við illa stilltir, við vorum í krummafóti í dag."

Lestu um leikinn: Fjölnir 4 -  0 Grindavík

„Það vantaði mikið, en eins fáránlegt og það hljómar þá var ég ánægður með margt í sóknarleiknum, við vorum að reyna réttu hlutina, en síðasta höggið er að klikka."

Sumarið hefur verið frábært fyrir Grindvíkinga og Óli Stefán sagði það eftir leik að þetta væri slakasti leikur liðsins í sumar.

„Já, ég verð bara að segja að þetta hafi verið slakasti leikur okkar frá því í nóvember, frá því við byrjuðum."

„Það eina sem við getum gert er að læra af þessu. Gunni Nelson var sleginn í rot, en hann stendur upp og reynir að læra af þessu. Við verðum að gera það, það er hellingur að taka út úr þessu."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan, en þar er Óli m.a. spurður út í félagsskiptagluggann sem nú er í gangi.
Athugasemdir
banner
banner