fim 17. ágúst 2017 19:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Fyrrum markvörður Man Utd í indversku ofurdeildina
Rachubka í leik fyrir nokkrum árum
Rachubka í leik fyrir nokkrum árum
Mynd: Getty Images
Paul Rachubka, fyrrum markvörður Manchester United er á leið til Kerala Blasters sem leikur í indversku ofurdeildinni.

Rachubka er fæddur í Bandaríkjunum og er 36 ára. Hann gekk til liðs við Manchester United þegar hann var níu ára og náði að spila þrjá aðalliðsleiki fyrir stórliðið áður en hann fór til Charlton sumarið 2002.

Rchubka hefur komið víða við á Englandi á sínum ferli. Hann hefur spilað með Huddersfield, Blackpool, Bolton, Leeds en síðasta tímabil var hann hjá Bury.

Kerala hefur myndað mikla tengingu við Manchester United að undanförnu en þjálfari liðsins er Rene Maulensteen, fyrrum aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson.

Þá gekk fyrrum varnarmaður Manchester United, Wes Brown til liðs við félagið á miðvikudag og er búist við að Dimitar Berbatov, annar fyrrum leikmaður Manchester United muni ganga til liðs við Kerala á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner