Heimir Guðjónsson þjálfari FH var að vonum svekktur með 2-1 tap gegn Braga í undankeppni Evrópukeppninnar á heimavelli í kvöld.
FH lék mjög vel í leiknum og voru yfir í hálfleik 1-0.
FH lék mjög vel í leiknum og voru yfir í hálfleik 1-0.
Lestu um leikinn: FH 1 - 2 Braga
„Við spiluðum þennan leik mjög vel á löngum köflum, sérstaklega í fyrri hálfleik komumst við sanngjarnt yfir og fengum fleiri möguleika. Seinni hálfleikurinn var erfiðari, þeir komu út og hækkuðu tempó-ið í leiknum og sköpuðu sér góð færi. Samt sem áður vorum við að skapa okkur góð færi í seinni hálfleik. Við gerum mistök, einstaklingsmistök sem er ekki hægt að gera þegar þú ert kominn á móti svona góðu liði. Þetta eru mistök sem þú sleppur með í Pepsi-deildinni en ekki gegn jafn góðu liði og Braga," sagði Heimir.
Eftir vonbrigðin í bikarúrslitunum á laugardaginn þegar liðið tapaði 1-0 gegn ÍBV mætti allt annað FH-lið til leiks í leikinn í kvöld.
„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem FH lendir í vonbrigðum. Ein af ástæðunum fyrir því að FH er alltaf á eða við toppinn er sú að við kunnum að bregðast við því að lenda í vonbrigðum. Ég var nokkuð viss um að við myndum mæta sterkir inn í þennan leik."
Framhaldið í þessari viðureign verður erfið.
„Það eru 34-35 gráður í Portúgal, þetta verður bara gaman. Við munum hjóla í þetta verkefni og láta reyna á Braga."
Viðtalið við Heimi má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan. Þar ræðir hann meðal annars um vistaskipti Kristjáns Flóka til Start.
Athugasemdir