Enski boltinn er gríðarlega vinsæll á Íslandi og nú hafa stuðningsmenn Chelsea hér á landi eignast nýjan heimavöll á netinu eftir að bloggsíðan cfc.is var opnuð.
Það er Jóhann Már Helgason sem annast skrifin á cfc.is síðuna en hann er harður stuðningsmaður Chelsea og hefur reglulega verið fenginn í sérfræðihlutverk hér á Fótbolta.net.
Síðan er áhugaverð fyrir allt áhugafólk um enska boltann en nýjasta greinin á henni ber titilinn „Óveðurský yfir Stamford Bridge?". Í greininni er rýnt í ástæður þess að ríkjandi Englandsmeistararnir töpuðu óvænt gegn Burnley.
Fjallað er um breiddina í hópnum, óánægju Antonio Conte og hvernig stjórnendur Chelsea þurfi að bregðast við.
Cfc.is er hugsuð á svipaðan hátt og hinar afar vinsælu síður kop.is og raududjoflarnir.is.
Athugasemdir