Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. ágúst 2017 19:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Snodgrass má fara frá West Ham
Snodgrass hefur valdið vonbrigðum hjá West Ham
Snodgrass hefur valdið vonbrigðum hjá West Ham
Mynd: Getty Images
Samkvæmt Sky má Robert Snodgrass yfirgefa West Ham, annað hvort fyrir fullt og allt, eða á láni, aðeins átta mánuðum frá því að hann gekk til liðs við félagið.

Snodgrass var einn besti leikmaður Hull á síðasta tímabili og var seldur þaðan til West Ham í janúarglugganum á þessu ári.

Síðan þá hefur hann átt í vandræðum með að finna sitt besta form og hefur ekki verið fastamaður í byrjunarliði félagsins.

Snodgrass skoraði 9 mörk fyrir Hull á síðasta tímabili en hann kostaði West Ham 10.2 milljónir punda. Snodgrass hefur áður leikið með Leeds og Norwich.

Snodgrass hefur leikið 15 leiki fyrir West Ham en hefur ekki skorað mark fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner